Jæja.. enn og aftur tókst að eyða út langa færslu en hvað er þetta
ég er svo yfirvegurð manneskja.. læt ekkert svona pirra mig

haha
Úff langt síðan ég bloggaði síðast og á það hefur ýmislegt gerst
síðan síðast veit varla hvar ég á að byrja...
Merkilegasta fréttin er náttla að ég er formlega orðin hjúkkunemi,
þar sem ég komst í gegnum klásusinn jippie jei!!

Fékk einmitt að
vita niðurstöðurnar síðasta daginn úti á Kanarí og var það
ánægulegt síðasta kvöld eða já góður endir á ferðinni.. annað en
síðast þegar ég var á Kanarí og fékk þá einmitt slæmar fréttir
síðasta kvöldið.. En já vúhú loksins er ég farin að stefna einhvert
og er mjög ánægð með valið og já er það mikill léttir

En þessi
önn er ekkert léttari en klásusinn, þótt sama pressa sé náttla ekki
á manni núna en samt alveg nóg að gera sko.. hjólaði einmitt heim
áðan í lélegri færð(ekkert verið að hafa fyrir því að ryðja
gangstéttirnar

)og með jah þrjár vel þykkar og
þungar bækur, en þar að auki ca 200 útprentaðar blaðsíður(þar sem
enginn "nennir" að tengja prentarann hérna heima.. haha) og tölvuna
mína sem er ekki sú léttasta.. furða að ég skyli komast heim með
allt þetta á hjóli heil á húfi!

Skellti mér einmitt á fyrsta vísindarferðina í Kaupþing síðasta
föstudag og byrjuðum við snemma eða um 4 og var ég farin heim um
0.30 hehe enda alveg komin með nóg en ég skemmti mér mjög vel og
ætla ég á eftir að láta inn skrautlegar myndir úr því djammi ásamt
frá Kanarí og já esjugöngu 1 jan!
Ef við förum aðeins aftur í tímann þá voru jólin fín, borðuðum
hreindyrakjöt namminamm og var möndlugjöfin í ár(sem ég benti mömmu
á btw) dreumaeyjan sem er mjög skemmtilegt spil. Eh.... áramótin
voru róleg, við vorum bara 4 hér og engar sprengur keyptar takk
fyrir enda er það bara bull og vitleysa.
Svo "skrapp" ég til Kanarí 2 jan og var til 9unda.. bara mjög fínt
með ömmu minni og bróður mömmu.. Fékk " frí" 2 kvöld og skellti mér
þá náttla á djamm með islendingum á mínum aldri gamangaman.
En já þá er bara að reyna að komast í gang að lesa aftur.. byrja
bara hægt og rólega eða þannig.. því það er nú nebbla svo gaman að
læra
Sjáumst!
Ja.. komnar inn myndir (kanarí 2007 og hjúkkuvísó)